Valmynd

Könnunin

Veđurstofa Íslands

Vegagerđin

Dćgradvöl

Makrílveiđar ganga vel og sumarsólin sleikir ţök snemma morguns.

Ingunn kom inn í gær í kjölfar Faxa og landaði um 400 tonnum af makríl en löndun lauk núna um 3 leitið og Lundey er á landleið með svipað magn. Búið er að frysta liðlega helmingi meira en á sama tíma í fyrra þó var byrjað viku fyrr á síðasta ári. Strandveiðibátar voru að tínast út í nótt í sumarblíðunni en veiðar hafa gengið vel hjá þeim heilt yfir og lítið sem ekkert hefur komið uppá hjá þeim hér á þessu svæði.

Miđbćrinn fullur af lífi, markađtorg og lifandi tónlist.

Miðbærinn var fullur af fólki og góð stemming á markaðtorginu í gær en þar var fólk með  sölubása og seldi allt milli himins og jarðar. Lifandi tónlist var á svæðinu og stemmingin fín. Seinna um daginn opnaði fólk svo fyrir gestum og gangandi og bauð upp á kjötsúpu að hætti hússins. Hér eru fleiri myndir sem Bjarki tók.

Gömul dagbókarfćrsla, getiđ upp á ţví hver er hér ađ skrfa :)

Mánudagurinn 21 Febrúar 2005

Kæra Dagbók,


í gær var kerlingadagurinn,en þar sem ég er svo aðlaðandi og frábær þurfti ég sko ekki að hafa neinar áhyggjur af því að eyða krónu í blóm eða súkkulaði og ekki þarf ég þá að hafa áhyggjur af því að hún fitni eða finnist blómin ljót, ónei og með þessum skrifuðu orðum held ég að ég hafi verið að tryggja það að ég þurfi aldrei hafa áhyggjur af slíku.


Annars er nú ekki mikið sem er búið að drífa á daga mína upp á síðkastið, en þó höfum við Sölvi, kær frændi minn, ákveðið að stofna hryðjuverkasamtök sem heita

...
Meira

Ung stúlka á síđasta séns.

Sandra hátt uppi á síđasta séns.
Sandra hátt uppi á síđasta séns.
« 1 af 2 »
Í dag var ungri snót sýnt hvað hún fer á mis við eftir nokkra daga en þá stendur til að hún verði loks gerð að heiðvirtri frú hér í bænum. Það er hestamaður vanur tamningum sem hefur tekið þetta verkefni að sér en hann þótti hæfastur í verkið eftir nokkra leit. Hún gengur í það heilaga 24 þessa mánaðra svo hún er á síðasta séns í dag.

Húsbílar mćttir til Vopnafjarđar og já, komu međ góđa veđriđ.

Um 100 húsbílar renndu í hlað í dag og komu sér fyrir víðsvegar um bæinn. Þetta er mikil viðbót í lítinn bæ en gaman að fá svo marga gesti í fjörðinn fagra. Veðrið lék við húsbílafólkið og okkur hin í dag en það var komið nóg af rigningu en það hefur rignt eins og helt hafi verið úr fötu síðustu daga.

Dagskrá Vopnaskaks 2010

Dagskrá Vopnaskaks 2010
Dagskrá Vopnaskaks 2010
Fimmtudagurinn 8. júlí – Golfmót Golfklúbbs Vopnafjarðar. Mótið hefst kl. 18:00 og leikið skv. Texas Scramble. Mótsgjald kr. 1.000 og boðið uppá hressingu á pallinum við Skála....
Meira

Fćrslusafn frétta

RSS

28.07.2010 | Ingunn AK

Helgarfrí

Ingunn AK
Ingunn AK
Góđan daginnHérna er ţađ helst í fréttum ađ viđ erum á Vopnafirđi ađ bíđa eftir ađ komast í löndun en Faxi er ađ landa. Viđ erum m...
Fleiri blogg

Fréttaveitur

RUV
Vísir Eyjan dv
pressan Morgunblađiđ
Skessuhorn bb
Víkari
Cnn
Vefumsjón