Brekkubær stækkaður um helming.
Sveitastjórnin hefur tekið áhvörðun um að ráðist í stækkun leikskólans Brekkubæjar og verður fyrsta skóflustungan tekin í fyrramálið af ungum nemendum skólans.
Húsrými leikskólans Brekkubæjar mun stækka um helming með fyrirhugaðri nýbyggingu en nýbyggingin mun hýsa eina deild, starfsmannaaðstöðu og myndarlegan skála, sem nýtast mun starfsemi leikskólans á ýmsa lund. Núverandi húsnæði er löngu sprungið þó íbúum hafi fækkað, nútíminn kallar einfaldlega á breyttar forsendur.
Starfsmannaaðstaða leikskólans er nú langt í frá viðunandi, deildirnar yfirfullar og geymslurými, t. a. m. vagna, ekkert. Með nýbyggingunni verða þrengslavandamálin úr sögunni og snotur bygging Magnúsar Skúlasonar arkitekts verður enn myndarlegri þar sem hún stendur smekklega ofan Lónabrautarinnar. Er þess vænst að fyrir vetrarveður standi nýbyggingin klár til inniverka og hinn 17. júní 2008 er vilji til að taka bygginguna formlega í notkun.

Fleiri fréttir
- 22. nóvember 2019
Fært yfir Selá - 14. nóvember 2019
Rjúpan friðuð á Vopnafirði. - 13. nóvember 2019
1800 tonn af fiskmjöli send í pokum frá Vopnafirði til Canada. - 22. september 2016
Venus aflahæsta skip flotans - 05. júní 2016
Gleðilegan Sjómannadag. - 18. mars 2016
Árshátið Vopnafjarðarskóla 2016 - 31. janúar 2016
Unglingadeild Vopna - 03. október 2015
Tveir í "slipp" - 26. ágúst 2015
Skjólfjörur í Vopnafirði - 07. ágúst 2015
Leifarnar af göngubrúnni teknar niður. - 05. ágúst 2015
Allt á floti - 28. apríl 2015
Karlakór Dalvíkur á Vopnafirði 1. maí - 29. mars 2015
Áshátíð Vopnafjarðarskóla 2015 - 01. janúar 2015
Gleðilegt árið - 09. desember 2014
Minkahús við Hrísa eyðilagðist í miklu roki í nótt
RSS
15.12.2019 | Enski boltinn
Geta unnið flest lið 5:0 (myndskeið)
?Þetta er grautur af báðu,? svaraði Bjarni Þór Viðarsson í Vellinum á Símanum sport, aðspurður hvort Mesut Özil, leikmaður Arsenal...